Nova Progressus ehf.

Nýtt upphaf á Sementsreitnum

Glæsilegar íbúðir sem eru þær fyrstu til þess að fara í sölu á svonefndum Sementsreit á Akranesi. Einstök staðsetning við sjávarsíðuna nærri hafnarkjarnanum þar sem fyrirhuguð er frekari uppbygging.

Í fyrsta áfanga Sementsreitsins koma til sölu 33 íbúðir. Góð breidd er af íbúðagerðum, frá tveggja herbergja upp í fimm herbergja íbúðir.

Lyftur eru í báðum inngöngum í húsinu og hverri íbúð fylgir einkastæði í bílakjallara. Geymslur eru jafnframt í kjallara.

Djúpgámar eru staðsettir austan við húsið og taka þeir mið af flokkunarkröfum sveitarfélagsins.

Skoða Íbúðir
Nova Progressus ehf.

Spennandi valkostur fyrir fjölskyldufólk

Akranes er heillandi bæjarfélag sem leggur mikið upp úr því að vera fjölskylduvænt. Þar þykir gott að ala upp börn og eru á Akranesi tveir grunnskólar, fjórir leikskólar ásamt Fjölbrautaskóla Vesturlands. Bæjarbúar koma gjarnan vel út úr hamingjukönnunum og eru að öllu jöfnu með þeim ánægðustu. Þar eru fjölmargir möguleikar til útivistar og hreyfingar.

Á Akranesi er öflugt íþróttastarf og þó svo að fótboltinn hafi gjarnan verið í þungamiðju íþrótta þá er fjöldi annarra æfingakosta til staðar. Þar má nefna sem dæmi Golfklúbbinn Leyni, Badmintonfélag Akraness, karatefélag, skotfélag, fimleikafélag, blakfélag, keilufélag, körfuboltafélag og sundfélag.

Nova Progressus ehf.

Innréttingarþemu

Hafglit

Eikarhlýja

Nova Progressus ehf.
Nova Progressus ehf.
Nova Progressus ehf.

Menningarbær

Akranes er bær með ríka sögu og menningarlega arfleifð. Hann hefur þróast frá því að vera lítið sjávarþorp yfir í nútímalegt samfélag með fjölbreyttu atvinnulífi. Með þróun iðnaðar og vaxandi ferðaþjónustu er Akranes í stöðugri sókn. Náttúrufegurð, menningarviðburðir og íþróttastarf bæjarins styrkja samfélagsandann og gera Akranes að eftirsóknarverðum stað til að búa á.

Skaginn