
Sementsreiturinn er í mikilli uppbyggingu þar sem þessu svæði verður gefið nýtt líf og hlutverk með aukinni íbúðabyggð, verslun og þjónustu. Svæðið mun þróast með góðri blöndu nýbygginga og eldri byggðar, íbúa, fyrirtækja og þjónustu.
Akranes er einn af byggðarkjörnum í nágrenni Reykjavíkur sem má segja að sé sífellt að færast nær höfuðborginni. Stærsti þátturinn liggur í betri samgöngum þar sem Hvalfjarðargöng hafa stytt leiðina upp á Skaga og þegar Sundabrautin kemur mun leiðin enn styttast.

Akranes er með sterka innviði og góða þjónustu fyrir íbúa sína. Heilsugæsla, skólar, leikskólar og verslanir eru allt í göngufæri og það gerir daglegt líf auðveldara. Bærinn býður upp á nauðsynlega þjónustu á sviði menntunar, heilsu og afþreyingar, sem skapar vel skipulagt samfélag.