Sýningaríbúðir

Íbúð 211

Íbúð 305

Glæsileg fimm herbergja íbúð á tveimur hæðum sem er innréttuð með þemað Eikarhlýja að leiðarljósi. Íbúðin hefur tvennar svalir sem báðar snúa í suðaustur. Á hvorri hæð er baðherbergi og á neðri hæð er þvottahús. Fataskápar og innréttingar voru valin af kostgæfni og koma frá Ormsson. Þá eru eldhústæki og blöndunartæki af hæstu gæðum og eru frá Ormsson og Byko. Íbúðinni fylgja tvö bílastæði í bílakjallara. Hér eru tölvugerðar myndir af íbúðinni.

Fallega hönnuð tveggja herbergja íbúð með inndregnum svölum sem snúa í suðaustur. Íbúð 305 er hönnuð í anda þemans Hafglit. Innréttingar eru vandaðar og koma frá Ormsson. Eldhústæki og blöndunartæki voru einnig valin af kostgæfni og eru frá Ormsson og Byko. Snyrtileg íbúð fyrir einstakling eða par.