
Akranes er stærsti íbúakjarninn á Vesturlandi með um 8.000 íbúa. Bæjarfélagið er einkar fjölskylduvænt og hefur starfandi tvo grunnskóla, fjóra leikskóla ásamt Fjölbrautarskóla Vesturlands.
Á Akranesi er öflugt íþróttastarf og þó svo að fóboltinn hafi gjarnan verið í þungamiðju íþrótta á Akranesi þá er fjöldi annarra æfingakosta til staðar. Þar má nefna sem dæmi Golfklúbbinn Leyni, Badmingtonfélag Akraness, Karatefélag, Skotfélag, Fimleikafélag, Blakfélag, Keilufélag og Sundfélag.
Það tekur ekki nema 40 mínútur að aka frá Reykjavík upp á Akranes. Innan bæjarins gengur strætó ásamt góðum samgöngum við höfuðborgarsvæðið. Þá er bærinn byggður á flatlendi þannig að þægilegt er að skella sér á hjólið til erinda.

Akranes er rólegt og fjölskylduvænt samfélag. Með góðum skólum, leikvöllum og öflugu íþróttastarfi er bærinn sérstaklega aðlaðandi fyrir fjölskyldur með börn.
Það er alltaf eitthvað sjarmerandi við minni bæjarfélög. Einstaklingurinn fær meira pláss og frelsið sem börnin fá að upplifa í uppvextinum er einstakt.

Helstu kostirnir við að búa á Akranesi snúa að góðri staðsetningu, fjölbreyttu atvinnulífi, öflugu samfélagi og náttúrufegurð. Akranes býður upp á rólegt og fjölskylduvænt umhverfi, ásamt betri húsnæðiskostum og minni umferð en á höfuðborgarsvæðinu. Þetta gerir bæinn aðlaðandi fyrir bæði fjölskyldufólk og þá sem kjósa að búa nálægt náttúru og friðsæld, en samt í tengslum við höfuðborgina.

Akranes er með sterka innviði og góða þjónustu fyrir íbúa sína. Heilsugæsla, skólar, leikskólar og verslanir eru allt í göngufæri og það gerir daglegt líf auðveldara. Bærinn býður upp á nauðsynlega þjónustu á sviði menntunar, heilsu og afþreyingar, sem skapar vel skipulagt samfélag.